Upphaf starfsárs haust 2022

sunnudagur, 11. september 2022

Fyrsti fundur ársins var haldinn inn í Básum á Goðalandi 25. ágúst í yndislegu veðri. Lagt var af stað frá Hvolsvelli á glæsilegri Austurleiðarrútu og var ritarinn okkar, Finnbogi Óskarsson, bílstjóri. Ágúst Ingi og Grétar stóðu grillvaktina með miklum sóma. Hluti ferðamanna gekk Básahring á meðan aðrir gerðu allt klárt. Ísólfur spilaði á gítarinn og við sungum nokkur lög. Góðir gestir voru með okkur og allir jákvæðir og reiðubúnir í væntanlegt starfsár. Á leið heim varð að stoppa reglulega og taka myndir því sólarlagið og veðrið var einstaklega fallegt þetta kvöld.