60 ára afmæli Rótarýklúbbs Rangæinga

sunnudagur, 1. mars 2026

SÓK

Þann 18. apríl hélt Rótarýklúbbur Rangæinga uppá 60 ára afmæli sitt. Klúbburinn var stofnaður að frumkvæði Ólafs Ólafssonar kaupfélagsstjóra sem hafði áður starfað með Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar. Móðurklúbburinn er Rótarýklúbbur Selfoss. Stofnfélagar voru 20 en í dag eru félagar 18. Félagar klúbbsins gera sér glaðan dag með menningarferð til Reykjavíkur og fara á eitt af öndvegis veitingahúsum Reykjavíkur í lok ferðar þar sem haldin verður afmælisveisla. 

Líflegt og öflugt starf er í klúbbnum og í tilefni afmælisins hefur klúbburinn t.d. haldið tvo opna fræðslufundi í vetur, farið í fyrirtækjaheimsóknir og fleira.  

Í tilefni afmælisins var farið í menningarreisu til Reykjavíkur. Heimsótt var Hrafnhildur Sigurðardóttir myndlistarkona, Listasafn Einars Jónssonar og að lokum var haldið á Hótel Holt þar sem Geirlaug sýndi okkur helstu listaverkin á hótelinu og að lokum var haldin afmælisveisla með dýrlegum málsverði. 

Frá stofnfundi Rótarýklúbbs Rangæinga fyrir 60 árum.