Golfmót Rótarý á Íslandi verður haldið á Akranesi þann 30. Júní 2026
Mótafyrirkomulag er þrískipt. Fyrst má telja meistarakeppni á milli klúbba um meistaratitil ársins 2026. Hver klúbbur má senda eins marga liðsmenn og þeir vilja, en þar telja tveir punktahæstu leikmenn í punktakeppni. Allir leikmenn spila á sinni skráðu leikforgjöf. Glæsilegur bikar er í verðlaun, en að sjálfsögðu er mesti heiðurinn montrétturinn - Klúbbmeistarar Rótarý 2026.
Punktakeppni einstaklinga er fyrir alla þátttakendur á mótinu, bæði Rótarýfélaga og aðra gesti. Allir leikmenn spila á sinni skráðu leikforgjöf. Kylfingar eru beðnir um að taka upp ef þeir ná ekki punkti á holu.
Vegleg verðlaun eru veitt bæði í karla- og kvennaflokki.
Höggleikur án forgjafar er þriðja keppnin og er aðeins fyrir skráða Rótarýfélaga.
Meginmarkmið dagsins að hitta góða vini og félaga og skemmta sér saman. Verðlaun verða veitt fyrir sigurvegara, en einnig fyrir næst holu á par 3 holum og lengsta teighögg. Í lok móts verður einnig dregið úr skorkortum fyrir „óheppnu“ leikmennina. Mótið er styrktarmót fyrir Rótarýsjóðinn. Hluti af mótsgjaldi rennur í sjóðinn og félagar og getir eru einnig hvattir til að skoða frjáls framlög í sjóðinn. Hluti verðlauna verður framlag í nafni verðlaunahafa í Rótarýsjóðinn.
Mótsgjald er kr. 11.000,- huti mótsgjalda rennur í Rótarýsjóðinn.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á Akranesi þann 30. júní.